Forsíða arrow Tölvunámskeið í boði arrow Excel fyrir lengra komna

Meðal samstarfsaðila

smenntlogo





sfr1



starfsmr2.jpg













vinnumalastofnun.jpg
 

kjolur.jpg

 

Excel fyrir lengra komna Print Netfang

Verð & Skráning

Excel fyrir lengra komna er öflugt námskeið þar sem farið er ítarlega í þetta frábæra forrit.  Það er hugsað fyrir þá sem hafa lokið grunnnámskeiðinu Tölvur og tölvunotkun eða hafa bærilegan grunn í Excel. Námið fer fram með sams konar hætti og önnur námskeið, það er í fjarkennslu þar sem nemendur fá send námsgögn (kennslubækur) í pósti og nálgast síðan margmiðlunarefni á netinu . Nemendur sækja svo alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins  gegnum tölvupóst eða þjónustusíma sem er opinn 9-21 virka daga.
Kennari:  Bjartmar Þór Kristinsson  

Lengd: Námskeiðið stendur yfir í  3 vikur í fjarnámi auk þess sem nemendur ríflegan stuðningstíma eftir að námskeiðinu lýkur. Námið er 26 stundir.
Athugið að í upphafi er 1 vika notuð til undirbúnings en kennsla hefst í upphafi næstu viku á eftir.
Forkröfur: Gert er ráð fyrir að nemendur hafi lokið grunn-námskeiðinu Tölvur og tölvunotkun og/eða hafi reynslu af notkun Excel og Windows stýrikerfisins.

Áhersluatriði:

  • Mikilvægustu gagnavinnsluföllinn
  • Gögn sótt sjálfvirkt á Netið inn í Excel til vinnslu
  • Snúningstöflur (Pivot)
  • Uppflettiföll,  leitar- og rökfræðiföll
  • Einfaldir gagnagrunnar
  • Gögn sótt í gagnavinnslukerfi
  • Röðun og síun gagna
  • Tengingar milli skjala og innan vinnubókar
  • Verndun og læsing gagna
  • Fjölvavinnsla (Macros) og gerð þeirra.
  • Fjármálaföll

 

Námsmat:
Námsmat byggir á skilaverkefnum og sí-mati.
Kennari:  Bjartmar Þór Kristinsson

Kennt er á bæði Excel 2003 & Excel 2007

Verð & Skráning

   

 

Hafðu samband









Tölvuskólinn NEMANDI / ORB Miðlun ehf  ~ 550506-0330 ~ Vsk. 90491 ~ sími: 5334004 ~ nemandi(at)nemandi.is  ~ Fellsmúli 6 , 108 Reykjavík