Fræðslupóstur
Hefurðu áhuga á að fá frí myndbönd & fróðleik með fræðslupósti Nemandi.is ? Drögum út frí námskeið í vetur.
|
|
Outlook - Skipulagning, tímastjórnun og tölvupóstur. |
|
|
Outlook er fjölþætt samskiptaforrit. Outlook er þægilegt í notkun en möguleikarnir mun fleiri en flestir notendur gera sér grein fyrir. Forritið sameinar kosti ýmissa annarra forrita og býr einnig yfir nokkrum nýjungum. Outlook er sérlega hentugt fyrir fólk sem vill bæta skipulag og samskipti, auðvelda tímastjórnun og verkefnastýringu og halda betur utan um tengiliði og viðskiptavini.
Verð & Skráning
Markmið námskeiða: Að loknu námskeiði á þátttakandinn að vera fær um að nota Outlook til utanumhalds um verkefni sín,tímaskráningar og skipulag auk þess að vera orðinn mjög fær tölvupóstnotandi.
Skipulag námsins: Lengd: Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur í fjarnámi auk þess sem nemendur ríflegan stuðningstíma eftir að námskeiðinu lýkur. Námið er 26 stundir. Athugið að í upphafi er 1 vika notuð til undirbúnings en kennsla hefst í upphafi næstu viku á eftir. Forkröfur: Gert er ráð fyrir að nemendur hafi lokið námskeiðinu Tölvur og tölvunotkun (grunnnáminu) og/eða hafi góða almenna reynslu í tölvunotkun. Kennsluaðferð: Námskeiðið fer allt fram í fjarnámi með aðferðum sem allir ráða við. Nemendur fá í upphafi sendar kennslubækur og leiðbeiningar en fá síðan reglulega send námsgögn á meðan námskeiði stendur þ.m.t. kennslumyndbönd. Nemendur sækja svo alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins í gegnum tölvupóst eða þjónustusíma sem er opinn 9-21 virka daga. Kennari: Bjartmar Þór Kristinsson
Meðal námsefnis:
- Halda dagbók, bóka fundi og sinna tímastjórnun
- Almenn skjalstjórnun
- Geyma og flokka upplýsingar um tengiliði og viðskiptavini og halda utan um samskipti við þá.
- Auðvelda eftirlit með eigin verkefnum sem og þeim sem eru úthlutuð öðrum
- Skrifa á minnismiða, geyma þá og flokka
- Halda ferilskrá yfir vinnu í tölvunni eða þá sem tengist völdum tengiliðum
- Senda og taka á móti – flokka og vinna með tölvupóst.
Námsmat: Námsmat er byggt á skemmtilegum skilaverkefnum og sí-mati. Kennari: Bjartmar Kristinsson
Verð & Skráning |
Þökkum kærlega fyrir frábærar viðtökur!
Tölvunámskeið Nemandi.is hafa vakið athygli undanfarið. Persónuleg þjónusta, hátt þjónustustig og mikill sveigjanleiki við námið hefur skilað okkur afar ánægðum nemendum & við erum að sjá hátt hlutfall nýnema koma til okkar vegna umsagna fyrri nemenda. Kennslumyndböndin okkar á netinu, sveigjanlegur námstími & þjónustusími nemenda frá 9-21 alla virka daga er það sem virðist standa upp úr í þeim mikla fjölda jákvæðra ummæla frá nemendum okkar. Við þökkum kærlega fyrir frábærar viðtökur ! Bjartmar Þór, eigandi & fjarkennari hjá Nemandi.is
|
|
Hafðu samband
|