Fræðslupóstur
Hefurðu áhuga á að fá frí myndbönd & fróðleik með fræðslupósti Nemandi.is ? Drögum út frí námskeið í vetur.
|
|
Powerpoint - Glærugerð og kynningar |
|
|
Markmið námskeiðs:
Að námskeiði loknu getur nemandinn af öryggi búið til áhrifamiklar og skemmtilegar glærusýningar og kynningar, sem tekið er eftir. Námskeiðið hentar sérstaklega vel öllum þeim sem þurfa að koma efni á framfæri á lifandi og sterkan hátt svo tekið sé eftir.
|
Verð & Skráning
Skipulag námsins:
Lengd: Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur í fjarnámi auk þess sem nemendur fá þriggja vikna stuðningstíma eftir að námskeiðinu lýkur. Námið er 24 stundir.
Athugið að í upphafi er 1 vika notuð í innskráningu í Netskólakerfið & undirbúning en kennsla hefst í upphafi næstu viku á eftir.
Forkröfur: Gert er ráð fyrir að nemendur hafi lokið námskeiðinu Tölvur og tölvunotkun (grunnnáminu) og/eða hafi góða almenna reynslu í tölvunotkun.
Kennsluaðferð: Námskeiðið fer allt fram í fjarnámi með aðferðum sem allir ráða við. Nemendur fá í upphafi sendar kennslubækur og leiðbeiningar en fá síðan reglulega send námsgögn á meðan námskeiði stendur þ.m.t. kennslumyndbönd. Nemendur sækja svo alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins í gegnum þjónustusíma sem er opinn 9-21 virka daga.
Kennari: Bjartmar Þór Kristinsson
Námsefni:
-
Notkun sniðskjala
-
Unnið með texta í PowerPoint
-
Litir og litabreytingar
-
PowerPoint sem kynningartæki
-
Litaðri glæru breytt í svart-hvíta
-
Bakgrunnur, bakgrunnslitir, stígandi, mynstur í bakgrunni og bakgrunnsáferð
-
Gerð lista, taflna, myndrita og skipurita í PowerPoint
-
Teikningar, ljósmyndir, hljóð og hreyfimyndir
-
Útlína notuð við glærugerð
-
Glæruröðun, glærur faldar og stjórnað hvernig þær birtast
-
Glærur sýndar með hjálp skjávarpa
-
Minnispunktar fyrirlesarans
-
Haus- og fótlína glæru
-
Grunnglærur (master), gerð þeirra og breyting
-
Notkun WordArt til að móta texta skemmtilegan hátt.
-
Prentun glærusýninga
-
Sjálfvirk glærusýning
Námsmat:
Námsmat er byggt á skemmtilegum skilaverkefnum og sí-mati.
Kennari: Bjartmar Þór Kristinsson
Verð & Skráning
|
Þökkum kærlega fyrir frábærar viðtökur!
Tölvunámskeið Nemandi.is hafa vakið athygli undanfarið. Persónuleg þjónusta, hátt þjónustustig og mikill sveigjanleiki við námið hefur skilað okkur afar ánægðum nemendum & við erum að sjá hátt hlutfall nýnema koma til okkar vegna umsagna fyrri nemenda. Kennslumyndböndin okkar á netinu, sveigjanlegur námstími & þjónustusími nemenda frá 9-21 alla virka daga er það sem virðist standa upp úr í þeim mikla fjölda jákvæðra ummæla frá nemendum okkar. Við þökkum kærlega fyrir frábærar viðtökur ! Bjartmar Þór, eigandi & fjarkennari hjá Nemandi.is
|
|
Hafðu samband
|