Forsíða arrow Tölvunámskeið í boði arrow Publisher Kynningarefni
Publisher - Kynningarefni fréttabréf omfl Print Netfang

Þetta námskeið er sérstaklega sniðið fyrir þá sem þurfa að búa til fjölbreytt kynningarefni eða prentgripi eins og fréttabréf, auglýsingar, kort, viðurkenningarskírteini, nafnspjöld, námsefni, rafræn fréttabréf og annað sem þarf að gefa út, með fljótvirkum hætti.

Verð & Skráning
 
Markmið námskeiðs: 
Að loknu námskeiði geta nemendur skilað frá sér fallegum og vel unnum skjölum og kunna að nota Publisher til þess að búa til margvíslega prentgripi.

Skipulag námsins:
Lengd: Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur í fjarnámi auk þess sem nemendur fá þriggja vikna stuðningstíma eftir að námskeiðinu lýkur. Námið er 24 stundir.
Athugið að í upphafi er 1 vika notuð í  innskráningu í Netskólakerfið & undirbúning en kennsla hefst í upphafi næstu viku á eftir.
Forkröfur: Gert er ráð fyrir að nemendur hafi lokið námskeiðinu Tölvur og tölvunotkun (grunnnáminu) og/eða hafi góða almenna reynslu í tölvunotkun.
Kennsluaðferð: Námskeiðið fer allt fram í fjarnámi með aðferðum sem allir ráða við.  Nemendur fá reglulega send námsgögn á netinu á meðan námskeiði stendur þ.m.t. kennslumyndbönd.  Nemendur sækja svo alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins í gegnum þjónustusíma sem er opinn 9-21 virka daga.
Kennari:  Bjartmar Þór Kristinsson

Námsefni:
Farið er í atriði sem nauðsynleg er að hafa í huga þegar fengist er við umbrot og útlitshönnun í Publisher.

  • Grunnatriði í notkun Publisher
  • Helstu verkfæri og verkfærastikur
  • Tegundir skjala – fréttabréf, auglýsingar ofl.
  • Notkun stíla
  • Tenging milli textareita.
  • Meðhöndlun á myndum
  • Haus & fótlínur
  • Gerð dálkmerkja
  • Gerð tafla
  • Sniðskjöl
  • Staðlað útlit skjala
  • Gögn flutt inn úr Word og Excel yfir í Publisher


Námsmat:
Námsmat er byggt á skemmtilegum skilaverkefnum og sí-mati.

Verð & Skráning
 
 


 

Hafðu samband









Tölvuskólinn NEMANDI / ORB Miðlun ehf  ~ 550506-0330 ~ Vsk. 90491 ~ sími: 5334004 ~ nemandi(at)nemandi.is  ~ Fellsmúli 6 , 108 Reykjavík