|
Word II - Framhaldsnámskeið |
|
|
Á námskeiðinu er farið í flóknari hluta Word forritsins og nemendum kennt hvernig láta megi forritið vinna fyrir sig og einfalda þannig verklag. Áhersla er lögð á tengingu við önnur forrit og sjálfvirkni við vinnu. Við lok námskeiðsins eiga nemendur að vera færir um að setja upp stór skjöl s.s. skýrslur og lokaritgerðir og geta fylgt eftir reglum og fyrirmælum sem nauðsynleg eru að gera áður en skjöl eru send til prentunar og úrvinnslu.
Word II framhaldsnámskeiðið er hugsað fyrir þá sem hafa lokið grunnnámskeiðinu Tölvur og tölvunotkun eða eru vanir tölvunotendur. Námskeiðið fer allt fram í fjarnámi með aðferðum sem allir ráða við. Nemendur fá í upphafi sendar kennsluhefti og leiðbeiningar en fá síðan reglulega send námsgögn á meðan námskeiði stendur þ.m.t.kennslumyndbönd. Nemendur hafa stuðning frá kennara í gegnum tölvupóst og þjónustusíma sem er opinn 9-21 alla virka daga. Lengd: Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur í fjarnámi auk þess sem nemendur fá ríflegan stuðningstíma eftir að námskeiðinu lýkur. Námið er 26 stundir. Athugið að í upphafi er 1 vika notuð til undirbúnings en kennsla hefst í upphafi næstu viku á eftir.
Forkröfur: Gert er ráð fyrir að nemendur hafi lokið námskeiðinu Tölvur og tölvunotkun (grunnnáminu) og/eða hafi góða reynsla af notkun Word og Windows stýrikerfisins. Kennari: Bjartmar Þór Kristinsson Áhersluatriði: - Sérstilla og búa til hnappastikur eftir þörfum
- Setja inn athugasemdir og hugmyndir í Word skjöl
- Tengja Word við hina ýmsu gagnagrunna til tengiprentunar
- Gera dreifibréf og auglýsingar sem styðjast við utanaðkomandi gögn
- Að flytja inn í Word gögn, s.s. úr Excel og PowerPoint.
- Stilla öryggisatriði tengdum Word skjölum
- Flokkun og úrvinnsla gagna í Word
- Nota teiknistikuna og útlitsmóta viðföng búin til með henni
- Leita, finna og útlitsmóta texta/hluta af texta
- Setja inn, laga og eyða sjálfvirkri ritun orða og setninga
- Laga, breyta og eyða innihaldi og útliti í töflum
- Nota töflur til umbrots
- Setja snið á texta, eyða því og lagfæra
- Setja inn sjálfvirka ritun efnisyfirlits
- Setja inn sjálfvirka ritun atriðisorðaskrár og myndaskrár
- Setja inn bókamerki
- Vinna með neðanmálsgreinar
Námsmat: Námsmat byggir á skilaverkefnum og sí-mati. Kennari: Bjartmar Þór Kristinsson Hægt er að velja milli kennslu á Word 2003 og Word 2007 Verð & Skráning
|
|
Hafðu samband
|