Forsíða

Helstu námskeið 2012

Nú geta einstaklingar byrjað þegar þeim hentar.     Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar.

 GRUNNÁMSKEIÐ:  Stýrikerfið, Word, Excel,Internetið Upplýsingatækni  
 10 vikur
 OFFICE 2007 (MICROSOFT WORD & EXCEL)
   4 vikur
 POWERPOINT - GLÆRUGERÐ OG KYNNNGAR 

 3 vikur
 EXCEL 1  TÖFLUREIKNIR : GRUNNUR
   3 vikur
 EXCEL 2  TÖFLUREIKNIR : FRAMHALD

 3 vikur
 WORD 2  RITVINNSLA : FRAMHALD
   3 vikur
 STAFRÆNAR MYNDAVÉLAR & MYNDVINNSLA 
   4 vikur
 STAFRÆNAR MYNDAVÉLAR & MYNDVINNSLA  B
 2 vikur
 OUTLOOK - SKIPULAGNING OG STJÓRNUN
   3 vikur
 PUBLISHER - KYNNINGAREFNI : FRÉTTABRÉF : BÆKLINGAR
   3 vikur

*Ath fyrsta vika er alltaf undirbúningstími og telst ekki með í heildarlengd námskeiða.  
**
Ofangreind námskeið eru föst  og taflan  ekki tæmandi yfir
námskeið sem haldin eru. 
spacerb.jpg

Hvernig virkar fjarnámið ?

Algengasta spurningin sem við fáum.   Svarið er einfaldlega A-B-C (Smella)

 

Þó fjarnám kalli á önnur vinnubrögð en staðbundið nám, þá eiga ákveðnir grunnþættir ávallt að vera í fyrirrúmi s.s. vandað & lifandi námsefni, stuðningur við nemendur og hvatning.
Framúrskarandi fjarnám. 

533 4004


UPPLÝSINGAR / SKRÁNING

Fræðslupóstur

Hefurðu áhuga á að fá frí myndbönd & fróðleik með fræðslupósti Nemandi.is ? Drögum út frí námskeið í vetur.






Meðal samstarfsaðila

smenntlogo





sfr1



starfsmr2.jpg













vinnumalastofnun.jpg
 

kjolur.jpg

 

Word II - Framhaldsnámskeið Print Netfang
Á námskeiðinu er farið í flóknari hluta Word forritsins og nemendum kennt hvernig láta megi forritið vinna fyrir sig og einfalda þannig verklag. Áhersla er lögð á tengingu við önnur forrit og sjálfvirkni við vinnu. Við lok námskeiðsins eiga nemendur að vera færir um að setja upp stór skjöl  s.s. skýrslur og lokaritgerðir og geta fylgt eftir reglum og fyrirmælum sem nauðsynleg eru að gera áður en skjöl eru send til prentunar og úrvinnslu. 

Word II framhaldsnámskeiðið er hugsað fyrir þá sem hafa lokið grunnnámskeiðinu Tölvur og tölvunotkun eða eru vanir tölvunotendur. Námskeiðið fer allt fram í fjarnámi með aðferðum sem allir ráða við. Nemendur fá í upphafi sendar kennsluhefti og leiðbeiningar en fá síðan reglulega send námsgögn á meðan námskeiði stendur þ.m.t.kennslumyndbönd.
Nemendur hafa stuðning frá kennara í gegnum tölvupóst og þjónustusíma sem er opinn 9-21 alla virka daga.
 
Lengd: Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur í fjarnámi auk þess sem nemendur fá ríflegan stuðningstíma eftir að námskeiðinu lýkur. Námið er 26 stundir.
Athugið að í upphafi er 1 vika notuð til undirbúnings en kennsla hefst í upphafi næstu viku á eftir.

Forkröfur: Gert er ráð fyrir að nemendur hafi lokið námskeiðinu Tölvur og tölvunotkun (grunnnáminu) og/eða hafi góða reynsla af notkun Word og Windows stýrikerfisins.
Kennari:  Bjartmar Þór Kristinsson   

Áhersluatriði:

  • Sérstilla og búa til hnappastikur eftir þörfum
  • Setja inn athugasemdir og hugmyndir í Word skjöl
  • Tengja Word við hina ýmsu gagnagrunna til tengiprentunar
  • Gera dreifibréf og auglýsingar sem styðjast við utanaðkomandi gögn
  • Að flytja inn í Word gögn, s.s. úr Excel og PowerPoint.
  • Stilla öryggisatriði tengdum Word skjölum
  • Flokkun og úrvinnsla gagna í Word
  • Nota teiknistikuna og útlitsmóta viðföng búin til með henni
  • Leita, finna og útlitsmóta texta/hluta af texta
  • Setja inn, laga og eyða sjálfvirkri ritun orða og setninga
  • Laga, breyta og eyða innihaldi og útliti í töflum
  • Nota töflur til umbrots
  • Setja snið á texta, eyða því og lagfæra
  • Setja inn sjálfvirka ritun efnisyfirlits
  • Setja inn sjálfvirka ritun atriðisorðaskrár og myndaskrár
  • Setja inn bókamerki
  • Vinna með neðanmálsgreinar

Námsmat:
Námsmat byggir á skilaverkefnum og sí-mati.
Kennari:  Bjartmar Þór Kristinsson

Hægt er að velja milli kennslu á Word 2003 og Word 2007 


Verð & Skráning

 

Þökkum kærlega fyrir frábærar viðtökur!

Tölvunámskeið Nemandi.is hafa vakið athygli undanfarið.  Persónuleg þjónusta, hátt þjónustustig og mikill sveigjanleiki við námið hefur skilað okkur afar ánægðum nemendum & við erum að sjá hátt  hlutfall nýnema koma til okkar vegna umsagna fyrri nemenda.  Kennslumyndböndin okkar á netinu, sveigjanlegur námstími & þjónustusími nemenda frá 9-21 alla virka daga er það sem virðist standa upp úr í þeim mikla fjölda jákvæðra ummæla frá nemendum okkar. 
Við þökkum kærlega fyrir frábærar viðtökur !
Bjartmar Þór, eigandi &
fjarkennari hjá Nemandi.is

Hafðu samband









Tölvuskólinn NEMANDI / ORB Miðlun ehf  ~ 550506-0330 ~ Vsk. 90491 ~ sími: 5334004 ~ nemandi(at)nemandi.is  ~ Fellsmúli 6 , 108 Reykjavík